Hjá Libresse tölum við um hlutina eins og þeir eru, við vorum fyrst til að sýna rautt blóð í dömubindaauglýsingu, fyrst til að tala um túrverki, ófrjósemi, breytingaskeið og hvað það er sem fylgir því að vera með leg og píku.
Okkur finnst ótrúlegt hversu mörg nöfn hafa verið notuð til að komast hjá því að kalla píkuna hennar rétta nafni. Við viljum taka orðið píka til baka, píka er ekki blótsyrði heldur fallegt orð yfir fallegt líffæri sem helmingur mannfólks hefur.
Libresse er stolt af því að hafa hlotið Svansvottun. Svanurinn hefur frá árinu 1989 verið opinbert umhverfismerki Norðurlandanna. Meginmarkmið Svansins er að draga úr umhverfisáhrifum af vöru eða þjónustu og auðvelda neytendum að velja umhverfisvænni vörur.
Kröfur Svansins tryggja að vottuð vara sé betri fyrir bæði umhverfið og heilsuna með því að:
Skrollaðu áfram niður og sjáðu úrvalið sem Libresse býður upp á.
Sjálfbærni er ekki bara tískuorð, sjálfbærni er lykillinn að því að jörðin lifi af. Því einbeitum við okkur að því að framleiða vörur sem eru ekki bara góðar fyrir þig heldur líka fyrir jörðina. Við viljum bæta líf kvenna og transfólks um allan heim og það getum við ekki gert ef við
eyðileggjum jörðina á sama tíma.
Við hjá Libresse erum stolt að því að framleiða vörurnar okkar á sjálfbæran hátt. Við erum meðvituð um nauðsyn þess að vinna í sátt og samlyndi við móður jörð og auðlindir hennar í öllu okkar starfi, allt frá efnisöflun til famleiðslu. Við vitum að við eigum langt í land en við viljum hvetja þig til að taka þátt í ferðalagi okkar í átt að fullkominni sjálfbærni.
Við segjum oft ungum stelpum einfaldu söguna: Þú byrjar á blæðingum um 12 ára aldur, tekst á við smá sársauka, eignast börn, fleiri blæðingar og svo lætur líkaminn kurteisislega af störfum um fimmtugt!
En þetta er ekki svona einfalt, ósagðar, óþekktar sögur af bæðingum, píkum og móðurlífi eru miklu flóknari og djúpstæðari.
Þetta eru raunverulegar sögur af ást og hatri, ánægju og sársauka. Sögur af ófrjósemi þeirra sem þrá að eignast börn, sögur þeirra sem vilja ekki í börn. Gleðin við barnsfæðingu, sársaukin við fæðingu og þögul sorg fósturláts. Sögur af reglulegum blæðingum og óreglulegum. Af vandræðalegum byrjunum og rússíbanareið tíðarhvarfa. Góðar sögur. Slæmar sögur. Hversdagslegar. Djúpstæðar. Bitrar og ljúfar, allskonar.
Allar raunverulegar, allar merkilegar og allar þurfa að heyrast. Deildu með okkur þinni reynslu hér #wombstories
Hér er hægt að nálgast frekari upplýsingar um herferðina #wombstories
Við eigum þá ósk að allt fólk geti hagað sínu daglega lífi eins og því best hentar. Þess vegna viljum við berjast gegn tabúum sem ríkja um blæðingar kvenna. Von okkar er sú að í framtíðinni verði blæðingar hvergi feimnismál. Allar Libresse vörurnar miða að því að þér líði vel og getir óheft tekið þátt í því sem þig langar til. Dömubindin okkar eru með yfirborði sem andar og SecureFit™ sem gerir þau þægileg og örugg. Libresse innleggin eru sömuleiðis þægileg og sérstaklega þunn. Við vonum að Libresse hjálpi þér að lifa lífinu óheft og frjáls!
Prófaðu nýju ofurþunnu FRESHPROTECT dömubindin sem byggð eru á nýrri tækni Airtech®, hönnuð til að gefa tilfinningu um ferskleika og öndun. Hin einstaka SecureFit® tækni aðlagast síðan lögun líkamans til að skapa þægindi og bindin haldast á sínum stað til að bæta lekaöryggi. Þannig getur þú fundið þitt öryggi þegar þú ert á blæðingm – sama hvað þú gerir eða hvar þú ert. Húðfræðilega prófuð og án allra ilmefna.
Prófaðu Daily Fresh innleggin okkar frá Libresse. Nú enn mýkri og þægilegri. Fullkomið til daglegrar notkunar. Libresse innleggin eru framleidd með ProSkin formúlu sem tryggir rétt pH-jafnvægi fyrir v-svæðið þitt ásamt virkri öndun. Þá eru innleggin okkar með CurveFit ™, sérstaklega hannað til að aðlagast líkama þínum og haldast á sínum stað sama hvað þú gerir. Innleggin halda þér þurri og feskri allan daginn – alla daga. Án allra ilmefna.
V-Cup frá Libresse er sveigjanlegur tíðabikar sem verndar þig í allt að 12klst. og jafnvel þá daga sem þér blæðir mest. Hann er framleiddur úr 100% læknisfræðilegu sílikoni sem aðlagast líkama þínum. Tíðabikarinn má nota aftur og aftur og er mjög umhverfisvænn. Fáanlegur í 2 stærðum, small og large. Hvaða stærð er rétt fyrir þig fer eftir nokkrum mismunandi þáttum eins og t.d. hversu gömul þú ert, hvort þú hefur fætt í gegnum leggöng og hversu miklar blæðingarnar eru yfirleitt.
Hvernig notum við tíðabikar? Tíðabikarnum er stungið í leggöngin til að safna tíðablóðinu og þegar hann er fullur eða eftir ekki meira en 12 klst. þá er hann tæmdur, skolaður og settur aftur upp. Hversu oft þú þarft að tæma bikarinn fer eftir því hversu miklar blæðingarnar eru.
Intimawear frá Libresse eru tíðanærbuxur sem draga jafnvel í sig blóðið eins og dömubindi. Hægt er að nota tíðabuxurnar aftur og aftur, þær draga í sig blóðið, engin lykt, enginn raki og ekkert vesen í allt að 12klst.
Eftir notkun eru tíðabuxurnar skolaðar með köldu vatni og sett svo í þvottavélina með venjulegum þvotti á 40 gráður. Endist í a.m.k. 50 þvotta!