Árum saman hefur Pik-Nik verið hluti af lífi Íslendinga. Flestir þekkja bragðið af þessum ljúffengu kartöflustráum og tengja það ánægjulegum minningum um ferðalög, samkvæmi eða bara kærkomin hvíldarhlé mitt í dagsins önn. Við framleiðslu á Pik-Nik er aðeins notast við fyrsta flokks ferskar kartöflur. Að auki eru þær sneiddar í bæði þykkari og lengri einingar en almennt gildir um kartöflustrá.