Nathan hf. – Klettagörðum 19 – 104 Reykjavík – Sími 530 8500 – Vsk nr. 11388
Pantanir sem berast í gegnum vefverslun fyrir kl. 24:00 eru afgreiddar næsta virka dag. Pantanir sem berast í gegnum söludeild eða tölvupóst þurfa að berast fyrir kl. 16:00 til að vera afgreiddar næsta virka dag.
*Pantanir á vörum frá samstarfsaðilum þurfa að berast fyrir kl. 11:00 til að vera afhentar viðskiptavinum á höfuðborgarsvæðinu næsta virka dag og pantanir viðskiptavina utan höfuðborgarsvæðisins eru afhentar á stöð Flytjanda næsta virka dag.
Nathan dreifir vörum á landsbyggðina með Flytjanda. Pantanir eru afhentar á næstu stöð Flytjanda.
*Nánari upplýsingar um útkeyrslu fyrir önnur svæði er að finna hér fyrir neðan.
Flytjandi gefur sér 1-2 daga til afhendingar
Frí sending á öllum pöntunum yfir 25.000 kr. án vsk.
Ef pöntun nær ekki tilsettu lágmarki leggst sendingarkostnaður á pöntunum samkvæmt verðskrá Nathan.
ÚTKEYRSLA Á AKUREYRI
Pantanir á lagervöru sem berast fyrir kl. 15:00 eru afhentar næsta virka dag.
*Pantanir á vörum frá samstarfsaðilum þurfa að berast fyrir kl. 11:00 til að vera afgreiddar næsta virka dag.
ÚTKEYRSLA Á SELFOSS, HVERAGERÐI, ÞORLÁKSHÖFN, EYRARBAKKA, STOKKSEYRI
Nathan dreifir vörum beint á ofangreinda staði á Suðurlandi á miðvikudögum og föstudögum. Aðra daga er vörum dreift með Flytjanda.
Pantanir á lagervöru sem berast í gegnum vefverslun fyrir kl. 24:00 kvöldið áður eru afgreiddar næsta virka dag.
*Pantanir á vörum frá samstarfsaðilum þurfa að berast fyrir kl. 11:00 til að vera afgreiddar næsta virka dag.
ÚTKEYRSLA Í REYKJANESBÆ, ÁSBRÚ, KEFLAVÍKURFLUGVÖLL, VOGA
Nathan dreifir vörum beint á ofangreinda staði á Suðurnesjum á fimmtudögum. Aðra daga er vörum dreift með Flytjanda.
Pantanir á lagervöru sem berast í gegnum vefverslun fyrir kl. 24:00 kvöldið áður eru afgreiddar næsta virka dag.
*Pantanir á vörum frá samstarfsaðilum þurfa að berast fyrir kl. 11:00 til að vera afgreiddar næsta virka dag.
SÓTTAR PANTANIR Í VÖRUHÚS
Pantanir á lagervöru sem á að sækja samdægurs þurfa að berast fyrir kl. 14:00 á virkum dögum.
Við afhendingu þarf að framvísa pöntunarnúmeri eða staðfestingu á pöntun.
Vöruhús Nathan er opið virka daga kl. 07.00 – 16:00, Klettagörðum 19, 104 Reykjavík.
ANNAÐ
Ef viðskiptavinur er í vanskilum þarf greiðsla útistandandi reikninga að berast fyrir kl. 11:00 daginn fyrir skilgreindan afhendingardag til að Nathan geti afhent viðskiptavini vörur. Greiddar og ósóttar pantanir eru geymdar í 10 virka daga. Að þeim tíma liðnum ber viðskiptavinur kostnað af vörunum, óháð því hvort þær hafi verið sóttar eða ekki. Nathan áskilur sér rétt til að farga vörunum án endurgreiðslu.
VÖRUR FRÁ SAMSTARFSAÐILUM
Vörur frá samstarfsaðilum eru vörur sem eru ekki geymdar á lager. Þessar vörur eru sérstaklega merktar í vefverslun. Verð á *vörum frá samstarfsaðilum eru breytileg frá degi til dags. Vörurnar eru háðar verðum birgjans og eru því verðin á vefverslun Nathan einungis til viðmiðunar. Endanlegt verð birtist á reikningi. Ef pöntuð vara frá samstarfsaðila er ekki til mun fyrirtækið leitast við að bjóða staðkvæmdarvöru.
Vörum frá samstarfsaðilum er ekki hægt að skila.
VÖRUSKIL
Ef skila á vöru (hver sem ástæðan er), skal kaupandi koma athugasemdum til skila til starfsmanna Nathan innan 48 klst. frá móttöku vöru.
Ef um vöntun á vörum er að ræða skal það tilkynnt til Nathan innan 48 klst. frá afhendingu.
Gallaðar eða rangt afgreiddar vörur utan höfuðborgarsvæðisins skulu endursendar með Flytjanda. Kreditreikningur er gerður þegar varan kemur í hús.
Hafi vara skemmst í meðhöndlun starfsmanna þriðja aðila (t.d. Flytjanda) eða misræmi er á milli fjölda afhentra vara og fylgiskjali, þarf móttakandi vöru að gera athugasemd við Flytjanda við vöruafhendingu.
*Vörum frá samstarfsaðilum (ferskvöru, frystivöru, mjólkurvöru, ávextir, grænmeti, brauðmeti og kjöt) er ekki hægt að skila.
REIKNINGSVIÐSKIPTI
Gjalddagi reiknings fer eftir viðskiptaskilmálum á milli Nathan og viðskipavina sinna. Dráttarvextir reiknast á reikninga sem greiddir eru eftir eindaga í samræmi við lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Við vanskil reikninga reiknast dráttarvextir frá eindaga til greiðsludags. Athugasemdir vegna útgefinna reikninga skulu berast fjármálasviði Nathan innan 10 daga frá útgáfudegi reiknings. Verði ágreiningur um fjárhæð reiknings er viðskiptamanni einungis heimilt að bíða með greiðslu á þeirri fjárhæð sem raunverulegur ágreiningur er um.
Stór hluti af vörusafni Nathan er afgreitt og reikningsfært eftir vigt. Nathan leitast eftir því að afgreiða sem næst þeirri þyngd sem viðskiptavinur pantar. Endanlegur reikningur miðast ávallt við endanlega þyngd vörunnar við afgreiðslu.
Seðilgjald leggst á alla greiðsluseðla í samræmi við núverandi verðskrá.
LÖG OG VARNARÞING
Íslensk lög skulu gilda um viðskiptaskilmála þessa, samninga og eftir atvikum tilboð sem Nathan gerir við viðskiptavini sína. Ágreining um framkvæmd samnings skulu Nathan og viðskiptavinur leitast við að leysa með samkomulagi. Ef ekki næst samkomulag skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Heimilt er að vísa ágreiningi til gerðardóms ef báðir aðilar eru því samþykkir og skulu lög nr. 53/1989 um samningsbundna gerðardóma gilda um málsmeðferð fyrir gerðardómi.