PONS er fjórðu kynslóðar fjölskyldufyrirtæki frá Katalóníu á Spáni sem framleiðir lífræna extra virgin ólífuolíu með fullum rekjanleika - frá akri til disks. Fjölskyldan hefur ræktað ólífur til framleiðslu á ólífuolíu síðan á fjórða áratug nítjándu aldar og er með 500.000 ólífutré á 300 hektara svæði í sinni umsjón.

Það sem skiptir fagaðila mestu máli

  • Stöðug gæði og bragð ár eftir ár
  • Áreiðanlegt framboð í stórum og litlum einingum
  • Skýr bragðprófíll


Hvert skref hjá PONS er úthugsað til að tryggja ferskleika og hámarks bragð olíanna. Meðal ólífutegunda eru afbrigði frá Spáni (Arbequina og Arbosana), Ítalíu (Lecciana) og Grikklandi (Koroneiki). Hvert afbrigði þjónar ákveðnu hlutverki í matargerð - frá mildri ferskri olíu til kraftmikilla polyfenólríkra olía.

Ólífurnar eru tíndar á þeim tímapunkti þegar þroski þeirra nálgast hámark, og síðan pressaðar innan 30 mínútna frá uppskeru til að varðveita næringargildi og hið fullkomna bragð. Þær eru svo kaldpressaðar (við hitastig undir 26°C) sem tryggir að viðkvæm bragðefni og andoxunarefni haldist óskert. Strax að pressun lokinni fer fram tafarlaus síun sem stuðlar að stöðugleika og tærleika olíunnar.

PONS býður upp á fjölbreytt úrval extra virgin ólífuolía, bæði hreinar og bragðbættar, sem mæta ólíkum þörfum fageldhúsa.

Nýjar vörur frá PONS

Við kynnum extra virgin ólífuolíu í skvísu og fimm nýjar bragðolíur. Bragðolíurnar eru bragðbættar með völdum náttúrulegum hráefnum á tvenns konar hátt:

  • Ferskar Arbequina-ólífur eru pressaðar (e. crushed) ásamt náttúrulegum hráefnum í einu ferli sem skilar fersku og skýru bragði.
  • Extra virgin ólífuolíur eru ,,infused" með náttúrulegum hráefnum eftir pressun sem veitir nákvæman og stöðugan bragðprófíl.


Kynntu þér nýju bragðolíurnar og framleiðsluferli þeirra í vefverslun Nathan hér.