Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 180°C og klippið bökunarpappír í litla fernynga til að setja ofan í bollakökuform úr áli
- Setjið granóla í blandarann og maukið alveg niður þar til áferðin minnir á grófan sand
- Setjið í skál, hellið smjörinu yfir og blandið vel saman
- Takið kúfaða matseið og setjið ofan í bökunarpappír í bollakökuforminu, ýtið mylsnunni þétt niður og upp hliðarnar
- Bakið síðan í 10 mínútur og setjið í fyrsti í 10 mínútur (til að kæla) áður en þið setjið fyllinguna ofan í
- Fyllið hverja skál með grísku jógúrtu og toppið með bláberjum, pistasíum og súkkulaði
Gotterí og Gersemar - granólaskálar