Um Nathan

Öflug þjónusta og vörumerki

Nathan hefur flutt inn og dreift fjölbreyttu úrvali af vörum frá mörgum af þekktustu framleiðendum heims síðan árið 1912. Nathan byggir á góðu samstarfi við fyrirtæki sem leita eftir gæðavörum og áreiðanlegri þjónustu; hvort sem það eru stórar og smáar verslanir, stóreldhús eða matvælaframleiðendur.

Okkar markmið er að styðja við árangur viðskiptavina okkar með því að einfalda öll aðföng. Hjá Nathan starfar samhentur hópur fólks með mikla sérþekkingu við að tryggja öflugar heildarlausnir í aðföngum þar sem breitt vöruúrval, hagkvæmt verð, traust afgreiðsla og persónuleg þjónusta eru í fyrirrúmi.

Vöruafgreiðslur okkar og fullkomnar frysti- og kæligeymslur tryggja skjóta þjónustu um allt land en hámarka um leið gæði hverrar vöru og skapa þannig Nathan mikið forskot á kröfuhörðum markaði.

Kæru viðskiptavinir,

Athugið að lokað er hjá Nathan mánudaginn 25. maí, annan í Hvítasunnu.

Höfuðborgarsvæðið
Pantanir þurfa að berast fyrir kl 24:00 mánudaginn 25. maí til að fá vörurnar afgreiddar þriðjudaginn 26. maí.
Pantanir af vörum frá samstarfsaðilum þurfa að berast fyrir kl 11:00 föstudaginn 22. maí til að fá vörurnar afgreiddar þriðjudaginn 26. maí.

Landsbyggðin

Pantanir þurfa að berast fyrir kl 24:00 mánudaginn 25. maí til að fá vörurnar afgreiddar (til Flytjanda) þriðjudaginn 26. maí
Pantanir af vörum frá samstarfsaðilum þurfa að berast fyrir kl 11:00 föstudaginn 22. maí til að fá vörurnar afgreiddar (til Flytjanda) þriðjudaginn 26. maí.