Minningarsjóður Vilhjálms Fenger hefur veitt Hugarafli veglegan styrk sem ætlaður er til að efla stuðning við ungt fólk í bataferli vegna andlegra áskorana. Minningarsjóður Vilhjálms Fenger, MVF, var stofnaður 26. febrúar 2014 en sjóðurinn var stofnaður til minningar um Vilhjálm Fenger fyrrverandi eiganda og forstjóra Nathan.

Hugarafl eru félagasamtök fólks sem hefur upplifað persónulega krísu og vinnur að eigin bata. Starfsemi félagsins byggir á samspili reynsluþekkingar og fagþekkingar og stendur öllum 18 ára og eldri til boða, án endurgjalds, óháð búsetu og án kröfu um tilvísun eða greiningu.

Þörfin fyrir aukinn stuðning við ungt fólk hefur farið vaxandi og mun styrkurinn gera Hugarafli kleift að efla þjónustu sína á því sviði. Með framlaginu hefur félagið getað ráðið starfsmann til að auka við viðtalsþjónustu fyrir ungt fólk, styðja betur við endurhæfingu þeirra og styrkja hópastarf Unghuga. Jafnframt verður fagmaður til staðar þegar þörf krefur til að veita handleiðslu og stuðning innan hópsins.

Minningarsjóður Vilhjálms Fenger er stoltur af því að geta lagt þessu mikilvæga starfi lið og þannig stuðlað að auknum tækifærum og bættri geðheilsu ungs fólks.

Nánari upplýsingar um starfsemi Hugarafls má finna á heimasíðu þeirra, www.hugarafl.is.