Til hamingju hveiti

Kæri viðskiptavinur,

Vegna frétta sem nú hafa birst um hveitiframleiðslu í Danmörku viljum við árétta að TIL HAMINGJU hveiti er með öllu ótengt þeirri umfjöllun.

Hveitið okkar kemur frá vottuðum sænskum framleiðanda og er framleitt utan þeirrar aðfangakeðju sem fréttirnar fjalla um. Framleiðandinn er með FSSC 22000 matvælaöryggisvottun, sem er alþjóðlega viðurkennd, auk ISO 14001 umhverfisvottunar.

Við hjá Nathan leggjum ríka áherslu á gæði og áreiðanleika þeirra vara sem bera TIL HAMINGJU vörumerkið og gerum skýrar kröfur til okkar framleiðenda. Við erum stolt af TIL HAMINGJU hveitinu og viljum að viðskiptavinir okkar geti treyst bæði vörunni og uppruna hennar.

Bestu kveðjur,
starfsfólk Nathan