Stóreldhúsið er fagsýning fyrir stóreldhúsa- og matvælageirann. Sýningin hefur verið haldin annað hvert ár síðan 2005 og hefur svo sannarlega vaxið ár frá ári. Fagfólki geirans gefst kjörið tækifæri til að hitta sína birgja, kynna sér nýjar vörur og vörumerki, efla tengslanetið sitt og sækja innblástur fyrir komandi verkefni.
Í ár langar okkur hjá Nathan að bjóða bragðlaukunum þínum í forvitnilegt ferðalag. Kíktu við á básinn okkar í Laugardalshöll fimmtudaginn 5. og föstudaginn 6. nóvember kl. 12:00-18:00 og smakkaðu það besta sem við höfum upp á að bjóða í mat og drykk, bæði vinsælar vörur og spennandi nýjungar.
Við hlökkum mikið til að sjá þig!
Með sælkerakveðju,
starfsfólk Nathan