Stækkum saman

Þann 8. október lögðu hátt í 700 manns leið sína að Klettagörðum 19 í heimsókn til Nathan til að fagna nýjum kafla hjá fyrirtækinu, sem kallast Stækkum saman. Í heimsókninni gafst tækifæri til að upplifa vörur og vörumerki Nathan á skemmtilegan hátt, njóta léttra veitinga frá Lux og góðs félagsskapar.

Fyrirtækjasvið Nathan stillti fram brotabroti af þeirra fjölbreytta vöruúrvali og bauð svo upp á smakk á nokkrum nýjum vörum:

  • Smakk á okkar nýjustu bragðólífuolíum frá Pons með nýbökuðu súrdegisbaguette. Kynntu þér frábæru ólífuolíurnar frá Pons hér.
  • Nýsjálenskt lambafille, marinerað í Knorr timian krydd paste, Pons ólífuolíu og ferskum hvítlauk. Eftir eldun var kjötið gljáað með Kikkoman Ponzu lemon, sesamolíu, Pons ólífuolíu og engifersafa. Sjáðu uppskriftina hér!
  • Debic ostakaka á tvenna vegu, annars vegar með hindberjapúrru frá Boiron og hins vegar með yuzu súkkulaði frá Valrhona. Báðar týpurnar voru toppaðar með heimagerðu hafracrumble og bökuðu Ivoire súkkulaði frá Valrhona sem naut sín vel.
    Kíktu á uppskriftina hér
    !

Fjörbarinn hristi í óáfenga kokteila frá Lyre’s og bauð upp á óáfengt freyðivín frá Oddbird. Crosta-Mollica hafði varla undan við að baka pizzur ofan í gesti, og einnig voru skemmtilegar framtillingar á vörumerkjum á borð við Sproud, Fritz-Kola, Ella’s Kitchen, Libero, Neutral, Til hamingju, QNT, Cheerios og Cocoa Puffs. Þá voru spennandi nýjungar frá BioTex og Vaseline kynntar til leiks á markað.

Boxmagasin stóð fyrir förðunarkennslu og lukkuhjóli þar sem var til mikils að vinna. Í lok heimsóknar fengu allir gestir veglegan gjafapoka með vörum frá Hellmann’s, Oddbird, Sun-Maid, Tunnocks, Castello, Rynkeby og fleiri frábærum vörumerkjum. Starfsfólk Nathan þakkar öllum þeim fjölmörgu viðskiptavinum og samstarfsaðilum sem sáu sér fært að koma og fagna þessum tímamótum með sér – aldrei að vita nema við endurtökum leikinn að ári liðnu.