Við hjá Nathan höfum opnað nýja móttöku að Klettagörðum 19 með það að markmiði að gera heimsókn viðskiptavina okkar enn þægilegri og bæta þjónustuna enn frekar.
Nýja móttakan er hönnuð til að skapa betri upplifun frá því að viðskiptavinir koma inn um dyrnar. Þar geta þeir fengið aðstoð, sótt pantanir og fengið alllar upplýsingar á einum stað.
Vöruafhending fer fram frá nýju móttökunni og er opin alla virka daga frá kl. 07:00–16:00.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í nýju móttökunni okkar að Klettagörðum 19 og bjóða ykkur enn betri þjónustu.