Eitt elsta og þekktasta vörumerki landsins hefur nýjan kafla

Libby's tómatsósa er mætt aftur í vefverslun Nathan og í hillur verslana á Íslandi eftir tveggja ára fjarveru af markaðnum. Endurkoman markar nýjan kafla í sögu vörumerkis sem hefur fylgt íslenskum heimilum í meira en heila öld og skipar sérstakan sess í matarminningum margra kynslóða Íslendinga. Við hjá Nathan vissum að sagan væri löng en nákvæmlega hvenær hún hófst er óvíst en við eigum til safn af gömlum auglýsingum frá Nathan & Olsen sem gefa okkur einhverja innsýn í söguna. Elsta heimildin sem við fundum var frá 2. janúar 1923 þar sem við sáum að skuldað hafði verið í bókhald að Libbys hefur greitt Nathan & Olsen 20 dollara í auglýsingastuðning. Við eigum svo fjölda auglýsinga til frá næstu árum á eftir sem auglýstu Libby's tómatsósuna, Libby's mjólk og Libby's niðursoðna ávexti.

Á meðan Libby's var fjarverandi af markaði var unnið að uppfærslu vörunnar til að samræmast nýjum evrópskum reglum og kröfum. Samhliða því hefur varan fengið nýtt útlit og kemur nú í endurhannaðri og betri flösku sem stendur á tappanum, sem auðveldar notkun og tryggir að sósan sé alltaf tilbúin þegar hennar er þörf.

Libby's er vörumerki sem margir tengja við æsku sína, fjölskyldumáltíðir, pylsur, grillveislur og hversdagslega matargerð. Það er sjaldgæft að vörumerki nái að lifa með þjóð í meira en hundrað ár og því er sérstakt að geta kynnt það aftur til leiks fyrir bæði þeim sem þekkja það vel og nýrri kynslóð neytenda.

Með endurkomunni er jafnframt horft til framtíðar. Markmiðið er að kynna Libby's fyrir nýrri kynslóð neytenda og minna á þá eiginleika sem hafa haldið vörumerkinu lifandi í gegnum árin: Einfaldleika, gæði og bragð sem hefur staðist tímans tönn. Herferðin sem fylgir endurkomunni byggir á einfaldri en táknrænni hugmynd: „Hún er snúin aftur.“ Slagorðið vísar bæði til þess að Libby's sé komin aftur á markað og til nýju flöskunnar sem hefur bókstaflega verið snúið við!

Endurkoma Libby's er því ekki aðeins endurkoma vöru heldur einnig endurfundur við hluta af íslenskri matarsögu. Eftir meira en hundrað ár á Íslandi er Libby's enn tilbúin í næstu pylsu, næstu grillveislu og næstu máltíð! Svo er aldrei að vita nema vöruúrval Libby's muni nú aukast á næstu misserum.