Jón Mikael Jónasson hefur verið ráðinn forstjóri Nathan og tekur til starfa hjá fyrirtækinu í júní nk. Hann tekur við forstjórastöðunni af Ara Fenger, sem hefur verið forstjóri félagsins síðastliðin 18 ár. Samhliða breytingunum mun Ari taka við sem stjórnarformaður félagsins.

Jón Mikael er með BSc –gráðu í fjármálum og hagfræði. Hann hefur víðtæka reynslu og var nú síðast framkvæmdastjóri Ofar en þar áður gegndi hann stjórnunarstöðum hjá Origo, Ölgerðinni og Danól auk þess að sitja í stjórnum ýmissa fyrirtækja.

Ég tek við áhugaverðu verkefni í framsæknu fyrirtæki sem nýlega hefur gengið í gegnum endurmörkun undir heitinu Nathan. Við erum að hefja nýjan kafla í sögu félagsins þar sem metnaður er fyrir að vaxa með okkar samstarfsaðilum með breiðara vöruúrvali

Ari Fenger tekur í sama streng.

„Eftir mikla stefnumótunarvinnu og skipulagsbreytingar síðustu misseri er frábært að fá Jón Mikael til liðs við fyrirtækið. Yfirgripsmikil stjórnunarreynsla hans og þekking á markaðnum mun efla Nathan enn frekar og styrkja vegferð fyrirtækisins til framtíðar."