Hvað er á þínum drykkjarseðli?

Vandaðar skreytingar geta skipt sköpum

Veitinga- og ferðaþjónusta snýst sífellt meira um upplifun - gestir leita ekki aðeins að góðum mat og drykkjum heldur horfa eftir smáatriðum sem gera heimsóknina eftirminnilega. Þar geta vandaðar skreytingar og vel útfærðir rétir og drykkir skipt sköpum.

Þurrkaðir ávextir hafa á undanförnum árum orðið vinsælir í framsetningu drykkja og rétta. Þeir skapa náttúrulegt og fágað yfirbragð, bæta sjónræna upplifun og gefa kokteilum og öðrum drykkjum skemmtilegan karakter. Svo skemmir ekki fyrir að geymsluþol þeirra er langt og sóun því minni en þegar ferskir ávextir eru notaðir.

Bjóðum gestum fjölbreytt úrval drykkja

Áfengislaus markaður vex hraðar en nokkur annar drykkjarflokkur í Evrópu. Með vönduðum áfengislausum drykkjum má með einföldum hætti lyfta upplifun gesta á hærra plan. Og með þessari breyttu neysluhegðun sjá rekstraraðilar ný tækifæri - að leggja metnað í áfengislaust úrval því það mætir þörfum fjölbreytts hóps. Með vönduðu úrvali er hægta að auka tekjur, bæta upplifun gesta og styrkja ímynd sína.

Kynnið ykkur endilega úrval okkar af skemmtilegu skrauti, áfengislausum kokteilum og vínum hér að neðan og í þessum vörulista.