Það gerist ekki á hverjum degi sem gosdrykkur með sterkan karakter lendir á Íslandi. Þýska vörumerkið Fritz-Kola er nú komið til landsins og stefnir beint inn á veitingastaði, bari og kaffihús.
Fritz-Kola var stofnað árið 2003 í Hamborg af tveimur vinum sem vildu gera hlutina öðruvísi. Í dag hefur vörumerkið náð sterkri stöðu víða í Evrópu, sérstaklega á stöðum þar sem áhersla er lögð á upplifun.
Fritz-Kola er þekkt fyrir hreint og kraftmikið bragð ásamt hærra koffíninnihaldi en mörg eiga að venjast. Vörulínan spannar klassískt kóla, sykurlausa útgáfu og límónaði með sítrónu og appelsínu, sem gerir stöðum kleift að bjóða upp á fjölbreytta og áhugaverða drykkjarseðla.
Á Íslandi verður áherslan fyrst og fremst á veitingageirann, þar sem Fritz-Kola passar vel inn á matseðla og sem valkostur fyrir þau sem vilja eitthvað annað en hefðbundin gosmerki.
Fritz-Kola er þegar byrjað að rata inn á valda staði og verður án efa sýnilegt í sumar. Hér er ekki bara nýtt gos á ferðinni heldurf vörumerki með sterka ímynd og karakter.