Við hjá Nathan erum spennt að tilkynna að við höfum hafið sölu á nýjum og spennandi vörum frá ítalska matvælarisanum Gruppo DAC, sem er hluti af hinni alþjóðlegu Bidcorp samsteypu. Um er að ræða glæsilegt vöruúrval á mjög hagstæðum verðum, meðal annars undir vörumerkinu Arco, sem fanga kjarnann í ekta ítalskri matargerð.

Vörurnar frá Arco eru sérstaklega þróaðar fyrir fagfólk í veitingageiranum sem gerir ríkar kröfur um framúrskarnadi gæði, stöðugleika og gott verð.

Arco er eitt helsta og elsta vörumerki Gruppo DAC. Vörulínan samanstendur af hágæða hráefnum sem eru ómissandi í öll eldhús og inniheldur allt það helsta úr ítalskri matarhefð.

Gruppo DAC á sér langa og farsæla sögu en fyrirtækið var stofnað árið 1972 í bænum Flero á Ítalíu. Ástríða fyrir gæðahráefnum hefur drifið fyrirtækið áfram í yfir 50 ár og í dag er DAC einn stærsti dreifingaraðilinn á matvælum til veitingageirans á Ítalíu, ásamt útflutningi til fjölmargra landa. Vörulistinn þeirra telur yfir 25 þúsund vörutegundir sem sýnir vel þá breidd og sérfræðiþekkingu sem býr í fyrirtækinu. 

Árið 2014 varð Grupp DAC hluti af Bidcorp (Bidfood) sem er ein stærsta samsteypa í heimi í dreifingu á matvælum, með starfsemi í 35 löndum. Þessi alþjóðlega tenging tryggir aðgengi að nýjum mörkuðum og vörum ásamt því að lögð er áhersla á gæðastaðla, sjálfbærni, stöðugar umbætur ásamt rekjanleika vara. 

Við erum virkilega stolt af því að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á þessar frábæru ítölsku vörur og hlökkum til að sjá þær gera góðan mat enn betri í ykkar eldhúsum. Við stefnum á að auka stöðugt við úrvalið af vörum frá Gruppo DAC. Það má því búast við að fleiri spennandi gæðavörur bætist í vefverslun okkar á næstunni.

Til að byrja með er hægt að kynna sér vöruúrvalið sem komið er í birgðir hér.