Oddbird hefur í meira en áratug helgað sig við að finna svar við einni spurningu:

Hvernig er hægt að búa til vín án áfengis sem á heima við hlið bestu vína heims?

Árið 2013 stofnaði Moa Gürbüzer, sænskur félagsráðgjafi, Oddbird með það að markmiði að gera áfengislaust vín jafn sjálfsagt og eðlilegt eins og annað vín.

Í yfir tvo áratugi starfaði Moa sem fjölskyldumeðferðarfræðingur og vann náið með einstaklingum og fjölskyldum vegna ofneyslu áfengis. Og í stað þess að vinna sífellt með neikvæðar afleiðingar áfengis, ákvað hún að ráðst að rót vandans og gefa fólki val um vandað áfengislaust vín.

Þannig varð Oddbird til. Oddbird er í dag einn fremsti áfengislausi vínframleiðandi í heimi þar sem framsýni, tækni og fagurfræði koma saman. Gæðin eru slík að Oddbird hefur verið á boðstólnum á Cannes og Óskarnum og fengið ítarlegar og góðar umfjallanir í Vogue.

Oddbird vinnur með klassískar evrópskar þrúgur eins og Chardonnay, Riesling, Merlot og fleiri. Við gerð vínanna er leitað að fyrsta flokks þrúgum með ákveðinn karakter eða bragðtóna svo hægt sé að varðveita bragðefni og ilm þegar áfengið er fjarlægt úr vínunum. Vínin eru látin þroskast í allt að 12 mánuði - sumar þrúgur eru eikartunnulegnar á meðan önnur eru látin þroskast í stáli til að halda fersk- og léttleikanum.

Síðasta skrefið í bruggun vínanna er einkaleyfisvarin aðferð sem kallast liberation. Vínin eru eimuð undir lágum þrýstingi og við lágan hita og þannig er áfengið fjarlægt varlega, án þess að skemma viðkvæm bragðefni og ilm.

Oddbird sýnir að vín án áfengis getur verið jafn ríkt af sögu, handverki og gæðum og hefðbundið vín. Öll vínin frá Oddbird eru án viðbætt sykurs, sætu- og bragðefna.