Betty Crocker

Betty Crocker er vörulína með köxumixum og kremum og ómissandi hjálpartæki þegar þegar gesti ber að garði.

Betty skapar tilefnið

Betty Crocker er vörulína með köxumixum og kremum og er ómissandi hjálpartæki þegar veisla ber að garði.  Betty Crocker skapar tilefnið þú þarft bara að njóta þess.

 

Skemmtilegar uppskriftir frá Gotterí og gersemar

Íssamlokur

16 stykki

Brownie botnar

  • 1 x Betty Crocker Chocolate Fudge brownie mix
  • 100 ml vatn
  • 50 ml Isio4 matarolía
  • 1 egg
  • ½ poki af súkkulaði Royal búðing (duftið)
  • Matarolíusprey
  1. Hitið ofninn í 160°C og takið til ferkantað kökuform sem er um 22 x 22 cm og klippið bökunarpappír í botninn (x 2 umganga). Spreyið vel með matarolíuspreyi.
  2. Setjið egg, olíu og vatn í hrærivélarskálina og blandið saman.
  3. Hellið þá kökuduftinu saman við og hrærið vel áfram.
  4. Að lokum fer búðingsduftið saman við og því er blandað rólega og stutt saman við.
  5. Setjið helminginn af deiginu í einu í kökuformið (um 340 g í hvort skipti) og bakið í 17 mínútur. Endurtakið þá leikinn og leyfið botnunum að kólna. Geymið seinni botninn bara á smjörpappírnum í forminu því ísinn kemur þar ofan á.

Fylling og samsetning

  • 2 x jarðarberja Häagen-Dazs ís
  1. Takið ísinn úr frystinum um 30 mínútum fyrir notkun svo hann mýkist aðeins upp.
  2. Skafið hann upp úr dósunum í nokkrum skömmtum og setjið yfir brownie botninn sem er í kökuforminu, dreifið jafnt úr ísnum.
  3. Leggið hinn botninn ofan á ísinn og frystið að nýju í að minnsta kosti 2 klukkustundir.
  4. Lyftið síðan ískökunni upp á bökunarpappírnum og skerið í 16 hluta og þá hafið þið íssamlokur að grípa í þegar hentar.
  5. Geymið í plasti eða góðu lokuðu íláti

„Red Velvet“ kaka með rjómaostakremi

  • 1 x Betty Crocker Red Velvet kökumix
  • 3 egg
  • 100 ml súrmjólk
  • 100 ml Isio4 matarolía
  • 100 ml vatn
  • 2 tsk. vanillusykur
  1. Hitið ofninn í 160°C.
  2. Setjið allt nema kökumixið í hrærivélarskálina og blandið saman.
  3. Bætið kökumixinu saman við og hrærið áfram í um 2 mínútur, skafið niður hliðarnar á milli.
  4. Smyrjið 2 x um 20 cm kökuform vel að innan, skiptið deiginu jafnt niður í formin og bakið í um 30 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á endanum en ekki blautu deigi.
  5. Kælið
  6. Skreytið með Rich Cream Cheese Style Icing kreminu

NÝJUNG: Sykurlaus Betty Crocker

Sykurlaus súkkulaðikaka

Ljúffeng og góð súkkulaðikaka… og núna SYKURLAUS? Ó já, þú last það rétt. Betty hefur búið til uppáhalds súkkulaðikökuna þína – sykurlaus, Svo, eftir hverju ertu að bíða? Kveiktu á ofninum og bakaðu uppáhalds súkkulaðikökuuppskriftina þína fyrir þig og fjölskyldu þína til að njóta saman…án sykurs.

Sykurlaust, án gervilitarefna
Frábært bragð!
Hentar fyrir grænmetisætur

Sykurlaus vanillukaka

Ljúffeng, flauelsmjúk… og núna SYKURLAUS? Já, þú last það rétt. Betty hefur búið til uppáhalds vanillukökublönduna þína – sykurlaus, án lita og gervibragðefna. Svo, eftir hverju ertu að bíða? Bakaðu uppáhalds vanillukökuuppskriftirnar þínar með nýju sykurlausu vanillukökublöndunni okkar og njóttu sama frábæra vanillubragðsins…nú án sykurs.

Sykurlaust, án gervibragðefna og lita
Frábært bragð!
Hentar fyrir grænmetisætur

Offcanvas bottom
...