Nathan & Olsen er ein stærsta og elsta heildsala landsins

Nathan & Olsen sem var stofnað 1912, hefur verið í eigu sömu fjölskyldu síðan árið 1914 og státar nú af 110 árum af árangursríkum rekstri á Íslandi. Fyrirtækið hefur trausta stöðu á matvæla-, smásölu- og snyrtivörumarkaði með þekkt alþjóðleg vörumerki sem og framleiðslu , sölu- og markaðssetningu á eigin vörumerki, Til hamingju.

Nathan & Olsen er dótturfyrirtæki 1912 ehf. sem er einnig móðurfyrirtæki Ekrunnar og Emmessís. Starfsfólk samsteypunnar býr yfir áralangri reynslu, þekkingu, ástríðu og sköpunargleði og starfar sem ein liðsheild með gildi 1912 að leiðarljósi.

Nánar um söguna

 
  •  

    1912

    Nathan & Olsen var stofnað þann 1. janúar árið 1912 af tveimur dönskum athafnamönnum, þeim Fritz Nathan og Carl Olsen. Fyrirtækið var með starfsemi í Hafnarstræti 21. Rekstur fyrirtækisins gekk vel fyrstu árin og starfsemi þess varð bæði víðtæk og blómleg. Reksturinn fólst jöfnum höndum í inn- og útflutningi, þar sem landbúnaðar- og fiskafurðir voru fluttar út og ýmsar nauðsynjavörur fluttar inn. Fyrirtækið starfrækti útibú víða um land og átti um tíma flutningaskip í siglingum milli hafna innanlands og erlendis.

  •  

    1914

    John Fenger var meðeigandi að fyrirtækinu en það er nú í eigu afkomenda hans. Sama ár hófst heimsstyrjöldin fyrri. Árið 1916 tók Nathan & Olsen til við að reisa fyrsta stórhýsið í Reykjavík að Austurstræti 16. Húsið var teiknað af Guðjóni Samúelssyni og þykir enn mjög glæsilegt. Þess má einnig geta að þetta var fyrsta húsið í Reykjavík sem lýst var með rafmagnsljósum.

  •  

    1915

    Í brunanum mikla í Austurstræti 25. apríl 1915 brann allt sem brunnið gat í skrifstofuhúsnæði Nathan & Olsen á efstu hæðinni í Austurstræti 9.

    Fyrirtækið leigði gufuskip til flutninga til og frá landinu árið 1915 og nokkru síðar keypti fyrirtækið sitt eigið skip, mótorkútterinn Harry, sem var í millilandasiglingum og strandferðum.

  •  

    1917

    15. september 1917 fluttist Nathan & Olsen í stórhýsið sem eigendurnir létu reisa við Austurstræti 16. Félagarnir komu m.a. upp rafstöð, þeirri fyrstu í Reykjavík.

  •  

    1924

    Fyrirtækið hafði útibú á Akureyri, Seyðisfirði og Ísafirði. 1920-1923 voru erfiðleikaár og auk þess fórst Harry, ótryggður. Árið 1924 varð því að selja stórhýsið og eignir á Ísafirði.

  •  

    1936

    Fritz Nathan seldi sinn hlut í fyrirtækinu árið 1936 og Carl Olsen seldi sinn hlut árið 1958. Fyrirtækið hefur síðan verið í eigu afkomenda Johns Fengers.

  •  

    1941

    Sú stefnubreyting var, í ljósi aðstæðna, að hætta útflutningi á landbúnaðar- og sjávarafurðum og einbeita sér að innflutningi. Síðari heimstyrjöldin var þá í algleymingi. Þann 7. júlí kom bandarískt herlið til landsins og leysti af hervernd Breta sem höfðu hertekið landið árið áður. Mikill uppgangur fylgdi komu Bandaríkjamanna og hagur landsmanna vænkaðist. Aukinn innflutningur Nathan & Olsen var því heppilega tímasettur, í takt við aukna kaupgetu almennings.

  •  

    1942

    Nathan & Olsen opnaði skrifstofu í New York sem starfaði þar út stríðið enda voru leiðir milli landa í Evrópu lokaðar vegna átakanna. Á þessum árum voru fundin mörg vörumerki sem áttu eftir að verða miklir heimilisvinir íslenskra heimila allt til dagsins í dag.

  •  

    1968

    Árið 1968 fluttist Nathan & Olsen í nýtt húsnæði sem fyrirtækið hafði reist sér að Ármúla 8. Matvara, búsáhöld og umboðssala á byggingavörum voru helstu áhersluþættir starfseminnar um þetta leyti og fram á seinni hluta 9. áratugarins.

  •  

    1988

    Ákveðið var að fyrirtækið einbeitti sér að innflutningi á matvörum og hætti innflutningi og umboðsverslun með aðrar vörur. Starfssemin var þetta ár flutt í húsnæði að Vatnagörðum 20.

  •  

    1994

    Þetta ár hófst tími uppkaupa. Breyttir tímar á markaði þrýstu á þörfina að stækka fyrirtækið og auka þannig hagkvæmni og styrkja stoðirnar enn frekar.

  •  

    1999

    Ákveðið var að skipta rekstri fyrirtækisins í nokkrar einingar. Heildsölufyrirtækið Ekran ehf. var keypt og sameinað stóreldhúsadeild Nathan & Olsen undir nafni Ekrunnar. Jafnframt var Nathan & Olsen skipt upp í þrjú félög, þ.e. markaðsfyrirtækið Nathan & Olsen, eignarhaldsfélagið 1912 og fasteignafélagið Sökkla. Útibú Ekrunnar var staðsett á Óseyri 3 á Akureyri.

  •  

    2008

    Öll starfsemi í Reykjavík var flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði að Klettagörðum 19.

  •  

    2012

    Á 100 ára afmæli fyrirtækisins árið 2012 var 1912 ehf. orðið eitt af stærstu fyrirtækjum landsins í heildverslun með dagvöru. Í gegnum dótturfélög sín Nathan & Olsen hf. og Ekruna ehf. bjó félagið nú yfir öflugum dreifileiðum til smásöluaðila, stóreldhúsa, iðnaðar og fríverslunar með kost.

  •  

    2013

    Ákveðið var að grípa tækifærið til frekari stækkunar og keypti 1912 rekstur með mörgum þekktum vörumerkjum á snyrtivörumarkaði. Bætt var við fjölda starfsfólks og nýtt svið var stofnað, þ.e. snyrtivörusvið Nathan & Olsen.

  •  

    2017

    Ekran keypti rekstur Íslenskra Matvara ehf. en kaupin voru stór skref í að þróa enn frekar heildarlausnir fyrir stóreldhús og auka þjónustu við viðskiptavini.

  •  

    2019

    Árið 2019 bætti 1912 við sig þriðju stoðinni með því að kaupa meirihluta í Emmessís. Með kaupunum opnuðust tækifæri til að nýta betur uppsett afl samstæðunnar og að auka vöruframboð í frostvöru.

 
 

Í DAG

Nú er 1912 leiðandi fyrirtæki á íslenskum matvörumarkaði og dótturfélögin Nathan & Olsen, Ekran og Emmessís þjóna neytendum og fyrirtækjum með fjölbreyttu vöru- og þjónustuúrvali.